Haustið er komið — er kominn tími á nýja skauta?

Jul 28, 2026

Haustið er komið — er kominn tími á nýja skauta?

Haustæfingar eru að fara af stað af fullum krafti og skautahallirnar fyllast aftur af iðkendum eftir sumarfríið. Núna er einmitt rétti tíminn til að skoða ástandið á skautunum — áður en keppnistímabilið byrjar fyrir alvöru í lok september. Að byrja tímabilið á nýjum, vel aðlöguðum skautum getur skipt sköpum fyrir frammistöðu og ekki síst öryggi. 

Af hverju núna?

Nýir skautar þurfa aðlögunartíma. Það tekur skautara yfirleitt nokkrar æfingar að venjast nýjum skautum, finna réttu tilfinninguna fyrir stökk og spinn, og láta skóna mótast að fætinum. Með því að skipta núna, áður en keppnir hefjast í lok september, gefurðu þér nægan tíma til að vera alveg tilbúin/n þegar dómarar fylgjast með.

Hvernig veit ég hvort skautarnir mínir eru orðnir úr sér gengnir?

Þetta er spurning sem við fáum oft í Pollýönnu. Hér eru helstu merkin sem þú ættir að leita að:

1. Djúpar krumpur við ökklann
Ef þú sérð djúpar, varanlegar fellingar eða hrukkur á hlið skautans, sérstaklega við ökklasvæðið, þá er stuðningurinn farinn að gefa sig. Yfirborðslegar rispur eru eðlilegar — en djúpar krumpur sem gengur ekki til baka þýða að skautinn heldur ekki lengur rétt utan um ökkla.

2. Skautinn fellur saman
Prófaðu að ýta létt á hliðarnar á skautanum efst við ökklann. Ef hann fellur auðveldlega inn, eða ef hann stendur ekki uppréttur þegar hann er óreimaður, er innri stuðningurinn horfinn. Þetta er hættulegt — sérstaklega við stökk og lendingar. Getur valdið álagsmeiðslum á öklum.

3. Þú þarft að herða meira en áður
Finnst þér þú sífellt vera að herða reimarnar, samt finnst skautinn laus? Þetta er oft merki um að innri púðinn sé samþjappaður og skórinn haldi ekki lengur réttri lögun. Fóturinn á að sitja fastur — hann á ekki að renna til eða lyftast við hælinn þegar þú skautar eða stekkur.

4. Verkir og þreyta
Ef þú finnur fyrir verkjum í ökklum, fótum eða Achilles sem þú varst ekki með áður, geta skautarnir verið orsökin. Slitnir skautar veita ekki lengur þann stuðning sem þarf, sem þýðir að vöðvarnir þurfa að vinna meira — og það leiðir til þreytu og verkja.

5. Of litlir skautar
Þetta á sérstaklega við um börn og unglinga sem vaxa hratt. Ef tærnar kreppast eða fóturinn er farinn að þrýsta á framhlið skautans er kominn tími á stærra númer. Of litlir skautar eru ekki bara óþægilegir — þeir geta valdið varanlegum fótavandamálum.

"Ég þori ekki að stökkva lengur" — þegar hausinn segir eitt en skautarnir annað

Þetta er eitthvað sem við heyrum reglulega frá skauturum: „Ég er hætt/ur að þora.“ Stundum er þetta sjálfstraustsvandamál, en oft er ástæðan mun einfaldari — skautarnir styðja ekki nóg.

Þegar skauti byrjar að gefa sig finnur skautarinn fyrir óstöðugleika í lendingum. Fóturinn verður „ótryggur", kannski fer hann hreyfast aðeins til í skónum við frákastið eða ökklinn fær ekki þann stuðning sem þarf. Þetta gerist oft  smám saman — svo hægt að skautarinn tekur ekki eftir því fyrr en óöryggið er komið fram.

Niðurstaðan? Skautarinn fer að hika. Hik verður að óöryggi. Óöryggi verður að hræðslu. Og allt í einu er kominn andlegur blokker — sem á sér kannski alls ekki rætur í getu skautarans, heldur einfaldlega slitnum skautum.

Ef þú þekkir þig í þessu: láttu kíkja á skautana. Það gæti verið að nýtt par leysi vandamálið. Það er óþarfi að vera stopp í að stökkva vegna lélegra skauta. 

Hvað með gæði og öryggi?

Skautar eru hannaðir með ákveðinn stífleika og stuðning sem miðast við ákveðna þyngd, getustig og æfingaálag. Þegar skautar eldast og slitna, minnkar stuðningurinn — og með honum öryggið. Þetta skiptir höfuðmáli við stökk þar sem lendingin getur verið allt að 7-8 sinnum líkamsþyngd á ökklann. Slitnir skautar geta einfaldlega ekki tekið við því álagi á öruggan hátt.

Komdu í Pollýönnu og láttu skoða skautana

Við höfum yfir 10 ára reynslu af því að hjálpa skauturum að finna réttu skautana. Hvort sem þú ert byrjandi eða farin að keppa, þá getum við metið ástandið á skautunum þínum, ráðlagt um stærð, og hjálpað þér að velja næsta par — ef það er kominn tími til.

Við erum með allar EDEA gerðir á lager: frá Tempo fyrir byrjendur, upp í Ice Fly og Piano fyrir lengra komna keppnisskautara. Einnig eru við með skauta frá Risport og eitthvað af Jackson skautum, en getum alltaf sérpantað ef þarf. 

Mundu: Réttir skautar eru ekki bara búnaður — þeir eru fjárfesting í árangri, öryggi og gleði á svellinu. Byrjaðu tímabilið rétt!

 


Leave a comment

Please note, comments must be approved before they are published

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.


Share this