Kósýgallar sameinast Pollýönnu — nýr kafli í sögu verslunarinnar

Jul 23, 2026

Kæru viðskiptavinir!

Við hjá Pollýönnu erum himinlifandi að tilkynna að við höfum keypt vefverslunina Kósýgallar.is! 🎉

Kósýgallar og kósýfatnaður hefur verið ein af okkar uppáhalds og meðal mest seldu vörum í mörg ár og þegar okkur bauðst til að kaupa Kósýgallar.is slóum við til — þeir deila sömu ástríðu á þægilegum og fallegum kósýgöllum, peysum og náttfötum fyrir alla fjölskylduna. Þegar tækifærið gafst til að sameina kraftana gátum við ekki sagt nei.

Hvað þýðir þetta fyrir þig?

Kósýgallar verða áfram reknir sem sjálfstæð vefverslun. Þú getur áfram verslað þína uppáhalds kósýgalla, náttföt, sængurföt, sloppa og margt fleira á kosygallar.is — alveg eins og áður.

Við höfum bætt kósýgöllum ofl. vörum frá Pollýönnu yfir í Kósýgalla og eins og er, er hægt að versla þær áfram inn á Pollyanna.is. En  með tímanum munu þessar vörur frá Pollýönnu flytjast yfir í Kósýgalla. Þetta á sérstaklega við um allt sem er mjúkt, hlýtt og þægilegt — kósýgalla, náttföt, sængurföt, sloppa, handklæði og aðrar huggulegar vörur.

Af hverju þessi breyting?

Með þessu fær Pollýanna meira svigrúm til að einbeita sér að sínu sérsviði — skautum, ballett, fimleikum, hokkí, ásamt Disneyvörum og leikföngum. Kósýgallar verða á sama tíma áfangastaðurinn fyrir allt sem er notalegt og mjúkt. Báðar verslanir verða þannig skýrari, markvissari og betri fyrir þig.

Framundan

Við hlökkum ótrúlega mikið til að takast á við þetta spennandi verkefni og vonum að þessar breytingar komi sér vel fyrir ykkur öll — bæði dygga viðskiptavini Pollýönnu og Kósýgalla.

Fylgist með — það er margt skemmtilegt framundan! ✨

Pollýanna ❤️


Leave a comment

Please note, comments must be approved before they are published

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.


Share this