EDEA vettlingar — svartir
EDEA vettlingar í svörtum lit — léttir og hlýir vettlingar sérstaklega hannaðir fyrir listskautara. Halda höndum heitum á ísnum án þess að hindra hreyfingu. Fullkomnir fyrir æfingar, keppnir og upphitun.
Mjúkt að innan, endingargott efni að utan og teygjanlegt úlnliðsband sem heldur þeim á sínum stað. Fáanlegir í fimm litum — veldu þinn!
Um EDEA
EDEA er ítalskt vörumerki sem er þekkt um allan heim fyrir hágæða hönnun í listskautum og fylgihlutum.
Aðeins hjá Pollýönnu.