Mjög flott útlit og veglegar hlífar.
Ekki hægt að vera í víðum fötum undir því maður klæðir sig í hlífarnar, þær smellast ekki utanum fötin heldur eru eins og "sokkar"
Barnið datt og hlífarnar héldu og rispuðust lítið sem ekkert.
Skipti um hjól undir skautunum en eftir nokkra daga notkun losnuðu hjólin og duttu af. Mikilvægt að tékka skrúfur fyrir hverja notkun myndi ég segja.
Annars mjög þægilegt að geta stækkað og minnkað skautana.
Yngra barnið fékk blöðrur af nuddi í minnstu stillingu en eldra barnið mjög sátt í stærri stillingu..