Fylgdu okkur

Frí sending á næsta Dropp afhendingarstað þegar verslað er yfir 15.000 kr.

14. daga skilafrestur þegar verslað er í netverslun!

Hafðu samband

Vöru hefur verið bætt við

Um Pollýönnu

Um Pollýönnu

Íslenska sérverslunin þín fyrir skauta, hokkí, dans og fimleika – síðan 2011.


Saga okkar

Pollýanna hóf göngu sína árið 2011 sem netverslun – löng áður en það var í tísku. Við höfum þjónað íslenskum skauturum  í yfir 14 ár og þekkjum því þarfir skautara mjög vel. Við bættum síðan við ballett, dans og fimleikavörum þegar við opnum verslun okkar í Bæjarlind 2020. Árið 2022 bætum við síðan við hokkí skautum og hefur sú deilda stækkað hratt hjá okkur síðan 2023 þegar við hófum sölu á CCM hokkí skautamerkinu.

Á árunum 2011-2020 rákum við l við Skautalíf.is á Laugardalshöll og byggðum upp þekkingu á búnaði sem raunverulega hentar íslenskum aðstæðum.

Þegar heimsfaraldurinn skall á árið 2020 tókum við stórt skref: við opnuðum fyrsta  verslunina okkar – á meðan aðrir voru að loka.

Í ágúst 2023 fluttum við í rýmri og bjartari húsnæði að Smiðjuvegi 74, Kópavogi – þar sem við erum enn í dag.

Pollýanna er ekki bara íþróttaverslun — við höfum einnig vandað Disney vörur og hárvörur í boði. Disney vörurnar eru eingöngu frá viðurkenndum framleiðendum í Evrópu, svo þú veist að þú ert að kaupa eitthvað sem er bæði gæðavara og öruggt.


Tímalína

2011 Pollýanna stofnuð – netverslun opnuð- Verslun í Hlíðarsmára í um  2 ár
2015–2020 Opnuðum  Skautalíf.is í Laugardalshöll og hófum sölu á listskautum
2020 Verslunin í Bæjarlind 1 opnuð – þrátt fyrir heimsfaraldur
2023 Flutningur í Smiðjuveg 74, Kópavogi – stærra og bjartara rými
2026 Þjónum áfram sem leiðandi sérverslun á Íslandi

Af hverju Pollýanna?

✅ Gæðavörur 

Allar vörur okkar koma frá viðurkenndum birgjum í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada. Þú getur treyst því að búnaðurinn sem þú kaupir hjá okkur er það sem hann gefin út fyrir. Við erum með nokkur af stærstu merkjunum hvert í  sínum sérgreinum. 

🏪 Sérfræðiþekking – ekki almenn verslun

Við erum sérfræðingar í listskautum, og erum alltaf að læra betur og betur inn á hokkí, fimleikum og ballett/dans. Starfsfólk okkar þekkir þessar greinar og getur ráðlagt þér um stærðir og val – hvort sem þú ert byrjandi eða keppnismaður. Tveir af starfsmönnum okkar eru skautarar, önnur búin að skauta í yfir 12 ár og hefur starfað hjá okkur síðan 2021 og önnur  hefur skautað í um 2 ár og hóf störf 2025. Gíslína eigandi er skautamamma til 15 ára og á 2 dætur sem hafa æft skauta og hafa þjálfað listskauta í nokkur ár. Önnur dóttirin var landsliðsskautari í 2-3 ár. Auk þess að þær hafa báðar æft fimleika í 2 ár og dans með skautaíþróttinni.  Árið 2025 bættist nýr starfsmaður við í hlutastarf en hún er móðir fimleikamamma til fjölda ára.  Það er því  góð og víðtæk reynsla í starfsmannahópnum okkar.

📍 Komdu í verslunina – prófaðu áður en þú kaupir

Við erum staðsett að Smiðjuvegi 74, Kópavogi. Þar getur þú prófað skauta, hokkívörur, fimleikaboli og ballett vörur og fengið persónulega ráðgjöf.

💰 Sanngjarnt verð – án þess að fórna gæðum

Með Klúbbunum okkar reynum við styðja við foreldra barna í íþróttunum að bjóða upp á bestu mögulegu verð á gæðavörum og afslætti af þó nokkrum vörum

🔄 14 daga skilaréttur

Ef eitthvað passar ekki, hefur þú 14 daga til að skila eða skipta.


Samfélagið okkar

Pollýanna er hluti af íslenska skauta og hokkí samfélaginu ásamt dans og fimleikasamfélaginu. Við styðjum foreldra með  afsláttaklúbbum Pollýönnu og vitum fátt skemmtilegra en að aðstoða íþróttafólk á öllum aldri æi að finna sinn rétta búnað, hvort heldur séu skautavörur, fimleika- eða dans/ballett vörur.

Hlökkum til að sjá næstu kynslóð íslenskra íþróttamanna vaxa og dafna.

Pollýanna ehf.,
Smiðjuvegur 74, gul gata
200 Kópavogur

Sími: 419-3535 

Reikningsnr.: 0130-26-100572 - Kennitala: 680311-0720.

Virðisaukanr.: 107666. Netfang: pollyanna@pollyanna.is


Við hlökkum til að hittast – hvort sem það er í verslun eða á netinu.
📍 Smiðjuvegur 74, Kópavogur | 🌐 pollyanna.is