Fylgdu okkur

Frí sending á næsta Dropp afhendingarstað þegar verslað er yfir 15.000 kr.

14. daga skilafrestur þegar verslað er í netverslun!

Hafðu samband

Vöru hefur verið bætt við

Skautakjólar

Glæsilegir skautakjólar fyrir allar stjörnur ⛸️✨

Hjá Pollýönnu finnur þú vandað úrval af skautakjólum sem sameina glæsileika, þægindi og öryggi á ísnum. Við leggjum áherslu á hágæða vörumerki eins og Jerry’s Skating World, sem eru þekkt fyrir framúrskarandi teygjanleika og endingu. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í keppni eða ert reyndur skautari, hjálpum við þér að finna kjólinn sem lætur þér líða eins og sigurvegara.

Við bjóðum líka upp á að sérpanta þinn kjól frá Jerry skating, en panta þarf í síðastalagi 2 vikum fyrir skautamót til að tryggja að kjóllinn verði komin í tækja tíð.  Hafðu samband við okkur á pantanir@pollyanna.is eða komdu við hjá okkur í verslun okkar.

Ertu óviss um valið? Lestu nýja bloggið okkar: Listin að velja rétta skautakjólinn – Allt sem þú þarft að vita

696 Fancy Fleece - Skautakjóll

19.950 kr

674 Fancy Fleece Dress – Black Rose

19.990 kr

Skautakjóll - bleikur með hvítu pilsi

19.980 kr

694 Snow Fleece Skautakjóll – Hlýr og Glæsilegur úr Flís

21.360 kr

692 Rosy Cozy Fleece Dress – Bluebell - Skautakjóll

19.980 kr

692 Rosy Cozy Fleece Dress – Blush - Skautakjóll

19.980 kr

Elegant Baby Pink Lace skautakjóll

16.990 kr

644 Possibilities Dress – Orchid

19.680 kr

Gæði sem mæta kröfum skautara

Skautakjóll er meira en bara falleg flík; hann þarf að þola mikið álag, veita fullkomið hreyfifrelsi og halda lögun sinni í gegnum flóknar æfingar. Kjólarnir okkar eru valdir með þetta í huga:

  • Hágæða efni: Við notum kjóla úr endingargóðum efnum eins og lycra, flaueli og mesh-neti sem anda vel og teygjast með líkamanum.
  • Smáatriðin telja: Vönduð saumaskapur og steinar sem sitja fastar tryggja að kjóllinn líti jafn vel út eftir margar æfingar og keppnir.
  • Þægindi í brennidepli: Allir kjólar eru hannaðir með innbyggðum nærbuxum (body-suit) til að tryggja að allt sitji rétt á sínum stað á meðan skautað er.

Sérpantanir frá Jerry’s Skating World

Ef þú finnur ekki rétta kjólinn á lager, þá bjóðum við upp á þá frábæru þjónustu að sérpanta kjóla frá hinu virta merki Jerry’s Skating World. Jerry’s er þekkt á heimsvísu fyrir einstaka hönnun og gæði.

Mikilvægt að panta tímanlega:
Til að tryggja að kjólinn komi í tækja tíð fyrir keppnir, hvetjum við iðkendur og foreldra til að vera tímanlega í samskiptum.

  • Afgreiðslutími: Getur verið nokkrar vikur eftir árstíma og eftirspurn.
  • Ráðgjöf: Við hjálpum þér að finna réttu stærðina miðað við mælingar svo kjóllinn passi fullkomlega þegar hann kemur.

Hafðu samband við okkur á pantanir@pollyanna.is eða kíktu í heimsókn til að skoða kjóla sem við eigum eða panta þinn einstaka keppniskjól.