Sérpantanir — Dans
Sérpantanir á dansvörum frá Danceme
Við höfum tekið að okkur að vera söluaðilar á Íslandi fyrir Danceme í Ukraínu sem framleiðir gæða fatnað fyrir samkvæmisdans. Danceme bíður upp á gott úrval af dansfatnaði, bæði fyrir samkvæmisdans og aðra dans stíla. Til að sjá hvort áhugi sé á vörunum þeirra munum við til að byrja með aðeins vera með sérpantanir frá þeim. Við mundum líklega taka fáar vörur inn til að hafa til sýnis í verslunni þannig að fólk geti séð gæðin og sniðin á nokkrum af vinsælustu vörunum þeirra.
Við tökum saman hóppantanir á dansvörum reglulega yfir veturinn til að lækka sendingarkostnað.
Sendu okkur tölvupóst
Skoðaðu úrvalið í vörulistunum og sendu okkur póst á pantanir@pollyanna.is og fáðu upplýsingar um verð og annað sem þú vilt vita. Við getum líka sent þér fleiri vörur af þeim vörum sem þú hefur áhuga á.
Algengar spurningar
Hvenær fæ ég vörurnar?
Vörur berast venjulega 2–4 vikum eftir pantanadagsetningu.
Get ég pantað utan pantanadagsetningar?
Já, en sendingarkostnaður getur þá orðið eitthvað hærri. Hafðu samband við okkur.
Hér getur þú skoðað vörulista fyrir dansvörur: