Sérpantanir — Skautavörur

Sérpantanir á skautavörum

Við náum því miður aldrei að bjóða upp á nema brot af vörum frá okkar helstu  heildsölum og framleiðendum í skautunum. Til að koma til móts við þá sem langar í vörur sem ekki eru til í verslunni frá nokkrum af framleiðendum okkar bjóðum við upp á sérpantanir frá þeim.

Við tökum saman hópupantanir á skautavörum reglulega yfir veturinn til að lækka sendingarkostnað. Skráðu þig hér að neðan til að taka þátt í næstu pöntun.

Ef þú hefur áhuga á einhverjum vörum frá Jerry Skating sem við erum ekki með á lager getur þú skoðað vörulistan þeirra hér að neðan og sent okkur tölvupóst á pantanir@pollyanna.is og fengið nánari upplýsingar um þær.

Algengar spurningar

Hvenær fæ ég vörurnar?
Vörur berast venjulega um 2 vikum eftir pantanadagsetningu.

Get ég pantað utan pantanadagsetningar?
Já, en sendingarkostnaður er þá hærri. Hafðu samband við okkur.

Vörulistar:

Hér getur þú fundið vörulista fyrir Jerry skating, hér er að finna skautakjóla, skautafatnað  og allar aðrar vörur frá Jerry skating: Vörulisti Jerry Skating

Hér er vörulisti fyrir skautakjóla frá Jerry sem þeir kalla Solitaire Skatewear þessir kjólar eru með dýrari steinum og mjög vandaðir. Þeir eru ekki alltaf allir til á lager og getur því tekið um 5 vikur að fá þá senda. Solitaire Skatewear