Sérpantanir — Hokkí

Sérpantanir á hokkívörum

Þar sem vöruúrval CCM er mikið og margar vörur til í mismunandi gæða og verðflokkum náum við aðeins að vera með brot af vörunum á lager.  Ef þig vantar einhverja vöru frá CCM sem við erum ekki með á lager getur þú sent okkur póst og beðið okkur um að panta fyrir þig. 

Við tökum saman hóppantanir á hokkívörum reglulega yfir veturinn til að lækka sendingarkostnað. Sendu okkur línu ef þig vantar einhverja sérstaka vöru á pantanir@pollyanna.is og fáðu upp verð. 

Næstu pantanadagsetningar

  • Pöntun : Dagsetning — 9.09.2026

Algengar spurningar

Hvenær fæ ég vörurnar?
Vörur berast venjulega 2–4 vikum eftir pantanadagsetningu. 

Get ég pantað utan pantanadagsetningar?
Já, en þá getur verið að sendingarkostnaður verði eitthvað hærri. Hafðu samband við okkur í pantanir@pollyanna.is

Hér getur þú fundið CCM vörulista með öllum vörum frá CCM til að skoða, sendu okkur vörunúmer og stærð og við sendum þér verð á vörunni.