Fylgdu okkur

Frí sending á næsta Dropp afhendingarstað þegar verslað er yfir 15.000 kr.

14. daga skilafrestur þegar verslað er í netverslun!

Hafðu samband

Vöru hefur verið bætt við

Fyrstu skrefin á ísnum

  • person Gislina Vilborg Olafsdottir
  • calendar_today
  • comment 0 comments
Fyrstu skrefin á ísnum

⛸️ Fyrstu skrefin á ísnum: Gott fyrir foreldra að vita

Það er dásamleg upplifun að sjá börnin sín ná tökum á að skauta á ísnum, hvort sem það er í skautahöllinni eða á frosinni tjörn. En fyrir foreldra sem eru að kaupa fyrstu skautana getur úrvalið virkað flókið og verðmunurinn ruglingslegur. Er dýrari skautinn alltaf betri? Skiptir máli hvaða merki er valið?

Hjá Pollyönnu höfum við selt skautabúnað í yfir 10 ár og búum yfir dýrmætri reynslu. Ég sem skrifa þetta hef verið „skautamamma“ tveggja stelpna í 15 ár, stelpna sem hafa æft í yfir 10 ár og önnur farið upp í landsliðið og síðan  hafa þær þjálfað líka í nokkur ár. Starfsmennirnir okkar eru sjálfir skautarar til margra ára. Við þekkjum því nákvæmlega þær spurningar og áhyggjur sem brenna á foreldrum.

1. Ekki láta verðið blekkja þig

Við sjáum oft að foreldrar fá „sjokk“ þegar þeir sjá æfingaskauta á háu verði og halda þá að ódýrari týpur séu sjálfkrafa drasl. Svo er ekki.

Við veljum aðeins merki sem við treystum. Jafnvel hagstæðustu skautarnir frá þessum merkjum eru hannaðir með réttan ökklastuðning í huga. Ódýrir skautar úr stórmörkuðum eru oft of mjúkir, sem veldur því að ökklinn „fellur inn“, barninu líður illa og það gefst fljótt upp. Gæðaskautar gera upplifunina skemmtilega strax frá fyrsta degi.

2. Hokkí- eða listskautar?

Þetta er algengasta spurningin.

  • Hokkískautar (Tempish og CCM): Eru með sterkari skel og verja fótinn vel. Þeir eru frábærir fyrir þau sem vilja snerpu og hraða. Strákar velja oftar hokkí skauta.

  • Listskautar (Tempish, Jackson, EDEA og Risport): Eru með lengra blað og fremst eru „tennur“ (toe pick) sem hjálpa við jafnvægi og spyrnu í listskautum. Stelpur velja oftar listskauta.

3. Hvað þarf að vera í skautatöskunni?

Til að gera skautaferðina fullkomna mælum við með þessum fimm hlutum:

  1. Hlífar: Mjúkar og harðar. Harðar nauðsynlegar til að verja bitann á blöðunum þegar gengið er utan íssins, mjúkar til að halda blöðunum þurrum á milli skautaferða og koma í veg fyrir ryð. 

  2. Sokkar: Þunnir en hlýir skautasokkar koma í veg fyrir nudd.

  3. Vettlingar: Verja hendurnar fyrir kulda og hnjaski ef barnið dettur.

  4. Taska: Heldur öllu á einum stað og gerir flutninginn auðveldan.

  5. Þurrkklútur: Mikilvægt er að þurrka vel af blöðunum eftir hverja notkun svo þeir ryðgi ekki.

4. Komdu til okkar – við hjálpum þér!

Við vitum að það getur verið erfitt að velja á netinu. Þess vegna bjóðum við ykkur velkomin á Smiðjuveg 74 (Gul gata) í Kópavogi. ( sama hús  og ET verslun og Funi)

Við mælum fætur barnanna, aðstoðum við mátun og tryggjum að þið farið út með skauta sem passa fullkomlega við þarfir ykkar og fjárhag. Okkar markmið er að fá börnin frá skjánum og út að leika – og það byrjar á réttu skautunum!


Viltu skoða úrvalið fyrir byrjendur? 👉 Sjáðu allt sem þú þarf fyrir skautaferðina hér

Leave a comment

Please note, comments must be approved before they are published