Umhirða skauta - Leiðbeiningar
Kæri viðskiptavinur,
Til að njóta skautanna þinna sem lengst mælum við með eftirfarandi umhirðu:
Dagleg umhirða
✓ Þurrkaðu skautana með hreinum klút eftir hverja notkun
✓ Geymdu skautana í mjúkum hlífum á milli skautaferða til að halda blöðunum þurrrum.
✓ Notaðu alltaf harðar skautahlífar þegar þú gengur utan íss
✓ Athugaðu reimar og festingar fyrir hverja notkun
✓ Mikilvægt er að reima vel frá skautunum eftir notkun svo auðvelt sé að komast þ-úr þeim og í þá næst. Þetta kemur í veg fyrir að skautarnir skemmist að innan við að troðast í og úr þeim.
Geymsla
✓ Geymdu skautana á þurrum stað við stofuhita
✓ Notaðu mjúkar blaðhlífar þegar skautarnir eru ekki í notkun
✓ Forðastu að geyma nálægt hitagjöfum
✓ Best er að geyma skautana upprétta
Þrif
✓ Fjarlægðu innlegg og þurrkaðu sér af og til
✓ Gott er að skipta um innlegg af og til, til að koma í vef fyrir sveppamyndun
✓ Notaðu eingöngu viðurkenndan leðurhreinsi
✓ Leyfðu skautunum að þorna í sólarhring milli notkunar
✓ Aldrei setja skauta í þurrkara eða nálægt hitagjöfum
Reglulegt viðhald
✓ Láttu brýna blaðið eftir um 20-30 skautaferðir, best
✓ Athugaðu ástand skautaskónna reglulega
✓ Skiptu um reimar þegar þær sýna slit
Hafðu samband
Ef þú ert í vafa um umhirðu skautanna þinna, ekki hika við að hafa samband við okkur:
- Sími: 419-3535
- Netfang: pantanir@pollyanna.is
Með góðri umhirðu endast skautarnir þínir lengur og þú nýtur þeirra betur!
Kveðja, Pollýönnu teymið