Ballettbolur Ava — svartur bolur fyrir fullorðna
Ava frá Bloch er klassískur ballettbolur úr Ballet Core línunni — hrein og snyrtileg hönnun sem hentar jafnt í kennslu, æfingar og sýningar. Bolurinn er með hjartalöguðu hálsmáli með smáfellingu að framan, empire- og prinsessusaumum sem móta hann að líkamanum og opnu í bakinu. Efnið er mjúkt, teygjanlegt og heldur lögun sinni æfingu eftir æfingu.
Hönnun og þægindi
Þunnar axlarólar (tank straps) og há skurðarlína á læri gefa fallega og frjálsa línu. Saumarnir að framan fylgja líkamanum í hreyfingu án þess að þrýsta, og opið í bakinu hjálpar bolnum að anda. Efnið (90% nylon og 10% spandex) er létt, teygjanlegt og hraðþurrkandi — kjörið fyrir langar æfingar.
Eiginleikar
- Þunnar axlarólar (tank straps)
- Hjartalaga hálsmál með fellingu að framan
- Opið í bakinu
- Empire- og prinsessusaumar sem fylgja líkamanum
- Há skurðarlína á læri
- Efni: 90% nylon og 10% spandex — mjúkt, teygjanlegt og hraðþurrkandi
- Fyrir ballett, dans og fimleika
Stærðir
| Stærð | Íslensk stærð |
|---|---|
| Petit (P) | 34-36 |
| Small (S) | 36-38 |
| Medium (M) | 38-40 |
| Large (L) | 40-42 |
| Xlarge (XL) | 42-44 |
Umhirða
Þvoðu á 30°C á varlegri stillingu og leggið flatt til þerris. Ekki setja í þurrkara og ekki strauja.