Settu jólaskap í hárið! Rauð jólahárteygja með hvítum kanti sem minnir á jólasveinahúfu og setur skemmtilegan svip á hátíðargreiðsluna.
Tilvalin í tagl eða snúð fyrir jólaboðið, jólapeysudaginn eða notalegar aðventustundir. Lítið jólaskraut sem gerir hversdagsgreiðsluna hátíðlega og er líka sæt viðbót í pakkann eða jóladagatalið.